Rúna Vala...hin eina sanna, enjoy...  

Gestabókin



Eldri blogg:





sendu mér póst
fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Jamm, alltaf gaman í gati í skólanum. Ég fór á sullið í gærkveldi. Það var fjör. Ég mætti frekar seint þannig að ég náði bara tveimur síðustu hljómsveitunum, Gaur og einhverri annarri sem ég man ekki í svipinn hvað heitir. Vá, hvað strákarnir í Gaur eru góðir!! Geggjað skemmtilegt, ég myndi alveg vilja fara á ball með þeim skal ég segja ykkur!! Annað kvöld verða svo Zero1 zero2 og the Birdies að spila á sullinu. Þau eru sem betur fer snemmma því þá get e´g farið fyrst þangað og svo í ammli til Hildar Sifjar á Ölver. Hún varð tvítug 30. janúar. Já, þetta verður áhugaverð helgi. Ég skráði mig í prufu fyrir litlu stúlkukindina með eldspýtnastokkinn sem Domus Vox setur upp í samvinnu við íslensku óperuna. Það gæti verið gaman! Jæja, ég er farin að leita mér að einhverjum félagsskap. Sjáumst!!


skrifað af Runa Vala kl: 11:28

Comments: Skrifa ummæli
© Sigrún Vala